Back to All Events

Falstaff

  • Harpa Concert House 2 Austurbakki Reykjavík, Reykjavíkurborg, 101 Iceland (map)

The Icelandic National Opera, Óperan

Nannetta: Harpa Ósk Björnsdóttir

TBA

Fyrsta stóra uppfærsla hinnar nýju Óperu verður gamanóperan Falstaff eftir Giuseppe Verdi og er það í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið er byggt á persónum úr leikritum eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaffs til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé út úr eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd.

Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverkið, en hann er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og hefur um árabil farið með burðarhlutverk á óperusviðum víða um heim. Í öðrum hlutverkum er fastur hópur söngvara hinnar nýju Óperu ásamt öðrum framúrskarandi söngvurum og kór.

Óperan verður flutt á íslensku í nýrri þýðingu eftir Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, en þýðingar þeirra fyrir óperusýningar Óðs hafa vakið mikla athygli.

„Og bréfaröð ritar

nú riddarinn frúnum.

Hann frekur sig fitar

á forboðnum túnum.“

„Þá var ég grannur, þá var allt í blóma.

Þetta var áður en ég kynntist rjóma.“

Artistic Team

Director: Brynhildur Guðjónsdóttir

Conductor: Alexander Joel

Stage design: Börkur Jónsson

Costume design: Helga I. Stefánsdóttir

Lights: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Music and choir director: Richard Schwennicke

Translators: Sólveig Sigurðardóttir, Þórhallur Auður Helgason

Previous
Previous
March 6

Falstaff

Next
Next
March 20

Falstaff